Lögin mín
Eins og ég hef montað mig af við ýmis tilefni er ég afkastamesti laga- og textahöfundur hljómsveitarinnar Á móti sól.
Ég hef hingað til gert fremur lítið af því að semja lög fyrir aðra, en ég hef gert nokkra texta fyrir hina og þessa.
Þar sem ég er frekar sjálfhverfur, eins og títt er um lagahöfunda, þá langar mig að setja hér inn örfá uppáhaldslög af mínum eigin lögum og segja örlítið frá þeim.

HVAR SEM ÉG FER er líklega vinsælasta lag sem ég hef samið. Ég samdi það haustið 2005 og söng það fyrst fyrir strákana á skemmtistaðnum Wall Street í Ármúlanum. Lagið kom út í apríl 2006 og varð fljótlega vinsælasta lag landsins.
Í júníbyrjun var lagið enn í efstu sætum vinsældalistanna og þá vildi svo skemmtilega til að Rockstar ævintýri Magna skall á með látum og varði allt sumarið. Það varð auðvitað til þess að lengja líftíma lagsins og þegar árið var gert upp var lagið mest spilaða lag ársins á bæði Bylgjunni og Rás 2 og sjálfsagt á fleiri stöðvum. Mér þykir afskaplega vænt um þetta lag.

ÞEGAR JÓLIN KOMA: Þótt Hvar sem ég fer sé sjálfsagt mitt vinsælasta lag þá hugsa ég að Þegar jólin koma sé mitt þekktasta lag. Það kom út fyrir jólin 1999 og varð strax vinsælt. Síðan þá hefur það fengið mikla útvarpsspilun um hver einustu jól. Lagið er líka merkilegt fyrir þær sakir að þetta er fyrsta lagið sem Magni söng í hljóðveri með okkur. Það sem meira er þá var hann með 40 stiga hita þegar hann var píndur til að syngja lagið. Það er ekki að heyra á söngnum.
Mér þykir ekki síður vænt um þetta lag.
Mér þykir ekki síður vænt um þetta lag.
Á ÞIG: Hvað vinsældir varðar þá er Á þig mitt undarlegasta sköpunarverk. Enda hefur það þrisvar sinnum náð hæstu hæðum vinsældalistanna. Lagið kom fyrst út vorið 1998 og varð nú ekki strax vinsælt, enda þótti textinn helst til dónalegur. Æ mig langar uppá þig þótti ekki beint við hæfi á þeim tíma og textinn vakti nokkuð hörð viðbrögð sumsstaðar. Til að mynda fékk lagið sama og enga spilun hjá RÚV. En smátt og smátt fór fólk að kveikja á ruglinu og um mitt sumar var lagið komið á topp 10 á bæði FM og Bylgjunni.
Upprunalega útgáfan er sungin af Björgvini Jóhanni, fyrsta söngvara ÁMS, enda kom Magni ekki til sögunnar fyrr en rúmu ári síðar. Það var síðan fljótlega eftir að Magni kom inn í bandið haustið 1999 að við vorum beðnir að flytja órafmagnað rólegheitaprógramm á tónleikum sem útvarpsstöðin Mónó stóð fyrir og þá datt einhverjum okkar í hug að setja lagið í
afslappaðan búning og skreyta það með tilbrigði við stef Robbie Williams; She´s the one sem var vinsælt á þessum tíma. Það er skemmst frá því að segja að útgáfan sló í gegn og eftir að hafa verið í maukspilun á Mónó í langan tíma tóku hinar stöðvarnar við og lagið varð jafnvel vinsælla en sumarið áður.
En þá er ekki öll sagan sögð. Einu eða tveimur árum síðar tókum við þessa útgáfu lagsins í Eldhúspartýi FM957 og í kjölfarið kom lagið út á sérstakri Eldhúspartýplötu sem Sena/Skífan gaf út. Það skipti engum togum að lagið varð vinsælt í þriðja sinn! Geri aðrir betur.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á tvær útgáfur lagsins. Annarsvegar upprunalegu útgáfuna og hinsvegar órafmögnuðu útgáfuna eins og hún var á safnplötunni Á móti sól í 10 ár, sem kom út 2006.

FLOTTUR: Þetta lag er fyrsti smellur okkar í ÁMS. Lagið kom út á fyrstu plötunni okkar, en hún ber hið ágæta nafn Gumpurinn. Lagið heitir raunar fullu nafni (Djöfull er ég) Flottur, en á þessum tíma var ekki til siðs að blóta í popplögum og þessvegna var ákveðið að djöfull er ég yrði innan sviga. Það gekk líka hálf brösuglega að fá spilun á lagið á Rás2. Menn þar á bæ voru ekki par hrifnir af svona dónaskap. En smám saman komst lagið í gegn á öllum stærstu útvarpsstöðvunum og varð þegar upp var staðið eitt vinsælasta lag sumarsins.
ÁRIN: Þetta lag samdi ég í hliðarherbergi í Lundgård studios í Danmörku, en þar tókum við upp síðustu plötu okkar. Þetta var í júní 2006 og á sama tíma var Magni að keppa í Rockstar Supernova í LA. Magni ætlaði að sjálfsögðu að vera með okkur þarna úti en Rockstar setti strik í reikninginn. Við ætluðum að færa bókunina til þegar kom í ljós að hann væri að fara til LA, en komumst þá að því að Danir eru ekkert hrifnir af svona last minute ændringer! Þannig að við létum okkur hafa það að vera þarna Magnalausir.
Það var síðan seint á árinu sem textinn fæddist, en kveikjan að honum var allt hafaríið í kringum einkalíf Magna vinar míns á þessum tíma. Ég lagði honum orð í munn í textanum, þannig að í raun er hann að syngja til Eyrúnar í þessu ágæta lagi. Lagið kom út í lok janúar 2007 og varð strax mjög vinsælt. Það sat á toppi lagalistans í fleiri fleiri vikur og skipti engu þótt Eurovisionlögin flæddu yfir landið á sama tíma. Engu þeirra tókst að velta laginu úr sessi. Ari Einarsson vinur minn og stórsnillingur útsetti blásturinn í laginu.

VERST AÐ ÉG ER VISS: Þetta lag þykir mér ákaflega vænt um. Lagið var lengi að verða til, en ég var strax viss um að það yrði gott. Ég gekk meira að segja svo langt að tilkynna að ég væri að semja besta lag sem ég hefði nokkurn tíma samið. Það má deila um það, en lagið er gott. Ég fer ekki ofan af því. Ari Einarsson vinur minn á talsverðan þátt í laginu, en hann gerði strengjaútsetninguna, sem er mjög fallag. Einnig útsetti hann gítarinn í byrjun lagsins. Mikill snillingur. Lagið kom út á plötunni 8, sem er síðasta plata ÁMS. Hún er líklega ein dýrasta plata Íslandssögunnar. Kostaði þegar upp var staðið nálægt 10 milljónum. Inn í þeim kostnaðartölum eru 3 ferðir í Lundgård studios í Danmörku, en sá staður er hreint himnaríki.
VERTU HJÁ MÉR: Þetta lag samdi ég skömmu eftir að ég samdi Þegar jólin koma. Bæði lögin eru undir talsverðum áhrifum frá svokölluðum Boyböndum sem nutu mikilla vinsælda á þessum tíma. Bönd eins og Backstreet Boys, Westlife og Boyzone. Útsetningin eldist kannski frekar illa, en lagið er samt sem áður fínt. Við komumst aldrei hjá því að spila það á böllum, en tökum það nota bene í nútímalegri útsetningu.
Það versta við þetta lag er myndbandið sem við álpuðumst til að gera. Við höfum gert mörg vond myndbönd, en þetta er líklega það versta þeirra. Í einhverju gríni ákváðum við að klæðast allir alhvítum dressum, sem var klár sítering í Boyböndin. Okkur fannst þetta voðalega fyndið, en grínið skilaði sér engan veginn. Það héldu allir að við værum að meina þetta og útkoman varð pínleg. Sem betur fer er myndbandið týnt og tröllum gefið.

EF ÞÚ ERT EIN: Þetta lag er af plötunni 8. Textinn fjallar um mann sem er að reyna að endurnýja kynni sín af fyrstu ástinni sinni, en þeirri konu kynntist hann í Rauða hverfinu í Amsterdam einhverjum árum áður. Leitin reynist þrautinni þyngri. „Þessir rauðu gluggar eru allir eins", eins og segir í kvæðinu.
HVER EINASTI DAGUR: Þetta lag samdi ég árið 2003 þegar við vorum að vinna plötuna Fiðrildi. Lagið komst ekki inn á þá plötu, enda var það ekki fullklárað. Þegar við fórum til Lundgård í Danmörku í fyrsta skipti tók Baldvin Aalen upptökustjóri okkar til margra ára lagið upp á arma sína og gerði á því nægilegar formbreytingar til þess að það gengi upp. Útkoman er prýðilegt popprokklag sem var í hópi mest spiluðu laga ársins 2006. Lagið kom út á plötunni Á móti sól í 10 ár, sem kom út fyrir jólin 2006.
ÉG VEIT EKKI HVAR ÉG ER: Þetta lag er reyndar miklu meira eftir Sævar Þór félaga minn í ÁMS en mig. Ég á þó smá hlut í því - og textann. En þótt lagið sé ekki nema að litlu leyti eftir mig þá hef ég það með hérna fyrst og fremst vegna þess hversu gaman var að vinna það. Það er nefnilega að langstærstum hluta tekið upp í skúrnum heima hjá mér. Þar sátum við Sævar og lékum okkur með ýmis hljóð og tókum upp allt nema trommur og söng. Lagið kom út sumarið 2011 og er síðasta lagið sem við ÁMS drengir sendum frá okkur.