Ég er sonur hjónanna Eyvindar Erlendssonar og Sjafnar Halldórsdóttur.
Ég er næstyngstur fimm systkina og af sumum þeirra talinn frekastur.
Fyrstu mánuði ævi minnar var talið að ég væri undrabarn, sem skýrist af því að sá almenni skilningur var uppi í fjölskyldu móður minnar að bein tengsl væru milli slefmagns ungabarna og gáfnafars, en ég þótti slefa óeðlilega mikið. Sá sameiginlegi skilningur ríkir nú í fjölskyldunni að ég hafi afsannað þessa kenningu.
Ég er grunnskólakennari að mennt og stunda meistaranám í menntavísindum meðfram starfi mínu þessa dagana. Aukinheldur er ég lærður blómaskreytir/garðyrkjufræðingur.
Ég kalla mig líka stundum tónlistarmann, en ég er hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Á móti sól og hef verið það
frá stofnun sveitarinnar árið 1995. Ég er afkastamesti laga- og textahöfundur sveitarinnar. Allt til ársins 2010 sá ég um rekstur hljómsveitarinnar, fyrst í mínu eigin nafni og síðan undir merkjum Samyrkjubúsins sf. sem við félagarnir stofnuðum utan um reksturinn. Samyrkjubúið sf. hefur gefið út fjóra geisladiska með Á móti sól og auk þess einn geisladisk með Ingó og Veðurguðunum og einn með söngsveitinni 3raddir&Beatur.
Ég hef starfað við kennslu í Grunnskólanum í Hveragerði síðan árið 2005 og haustið 2013 hóf ég störf sem deildarstjóri sérkennslu við skólann. Af fyrri störfum sem ég hef gegnt má nefna lagerstörf, ýmiskonar afgreiðslustörf, kjötsölu, verslunarrekstur, smíðavinnu og blómaskreytingar.
Ég er alinn upp á pólitísku heimili og hef haft áhuga á stjórnmálum allt frá því ég var unglingur. Ég hef kosið eitt og annað í gegnum tíðina og ávallt áskilið mér rétt til að skipta um skoðun. Ég gekk í Alþýðuflokkinn í lok síðustu aldar og þaðan lá leiðin sjálfkrafa í Samfylkinguna þegar hún varð til.
Þrátt fyrir mikinn áhuga á stjórnmálum hef ég ekki tekið mikinn þátt í pólitísku starfi fyrr en í kringum Alþingiskosningarnar 2013, þegar ég tók það að mér að skipa 3. sæti á lista Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi. Ég skipaði að vísu 7. sæti A-listans, sameiginlegs framboðs Samfylkingar, VG og Framsóknar, í Hveragerði fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar og hef eftir það tekið dálítinn þátt í bæjarmálunum. Setið í nefndum og þessháttar.
Ég var vinstrisinni í æsku, enda alinn upp af foreldrum sem keyptu Þjóðviljann og sendu mig 12 ára gamlan í fimm vikna sumarbúðadvöl til Austur-Þýzkalands. Þar sá ég í fyrsta sinn konu með yfirskegg. Hún var að æfa kúluvarp.
Smám saman færðist ég yfir á miðjuna og kalla mig jafnaðarmann í dag. Ég á í sjálfu sér ágæta samleið með helstu
stefnumálum míns gamla flokks, Samfylkingarinnar, en ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með frammistöðu flokksins í tveimur síðustu ríkisstjórnum. Þessvegna hef ég nú sagt skilið við Samfylkinguna og gengið til liðs við
Bjarta Framtíð.
Þeir sem vilja hafa samband við mig mega endilega senda mér póst á netfangið [email protected]